Breytingar á sóttkví

Við viljum vekja athygli á breyttum reglum um sóttkví sem hafa tekið gildi en þær má finna hér

Sóttkví verður fyrir þá sem eru útsettir á heimili.

Skilyrði sóttkvíar verða óbreytt, þ.e. aðskilnaður frá öðrum í fimm daga og PCR-próf til að losna.
Ef ekki er viðhafður fullur aðskilnaður frá smituðum á heimili lýkur sóttkví með PCR-prófi degi eftir að sá smitaði útskrifast, eins og verið hefur.
Þríbólusettir (smit telur sem ein bólusetning) á heimili fara þó í smitgát í stað sóttkvíar, sbr. að neðan, sem lýkur með PCR-prófi á fimmta degi.

Smitgát verður fyrir þá sem eru útsettir utan heimilis.
Í smitgát skal viðkomandi bera grímu í margmenni og þegar ekki verður hægt að viðhafa tveggja metra nándarreglu, úti sem inni. Forðast skal mannmarga staði og sleppa umgengni við viðkvæma einstaklinga.
Smitgát þarf að viðhafa í fimm daga og ekki þarf sýnatöku til að losna, sbr. þó þríbólusetta sem eru útsettir á heimili.

Börn á leik- og grunnskólaaldri eru undanþegin smitgát í þessum tilfellum en þurfa að vera í sóttkví ef smit er á heimili.

Mikilvægt er þó að halda áfram að huga að því hvort börn eru með einkenni sem líkjast Covid einkennum og fara í PCR próf ef grunur er um smit.